23.4.2009 | 20:56
Ætlar fólkið í landinu að láta Steingrím J komast upp með að segja öllum íslendingum ósatt um efnahagsástandið.
Það lítur út fyrir að Steingrímur J og félagar ætli að komast upp með það að segja okkur ósatt um efnahagsástand Íslands. Steingrímur kemst upp með það að svara ekki fyrirspurnum sem að honum er beint. Hann kemst líka upp með það að svara fréttamönnum með skætingi og útúrsnúningum.
Er þessi maður það sem þjóðin þarf nú á að halda NEI NEI NEI,
Kjósum ekki svona fólk sem ekki getur unnið fyrir okkur þ.e fólkið í landinu. Það er alveg að hreinu að Steingrímur J kemur til með að svara þessu frá Sigmundi Davíð með skítkasti en ekki með málefnalegum rökum, Framóskarflokkurinn getur nú sjálfum sér um kennt að koma þessi ómerkilega liði að til að stjórna.
Sigmundur Davíð spáir öðru hruni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta fjölmiðlafár það brýnasta í dag sem við þurfum á að halda, því lík málefna þurrð. Það þarf að senda alla fjölmiðla í endurhæfingu og námskeið í því að finna út hvað er þessu þjóðfélagi brýnast. Það hefur ekkert verið gert af þessari minnihlutastjórn í að bjarga heimilum þessa lands. Hvar er skjaldborgin hennar Jóhönnu Sig og Steingríms kjaftfora. Hvar eru björgunar aðgerðir fyrirtækja þessa lands.
Það væri nær að þessir fjölmiðlar kepptust í að upplýsa landslýð um þessar björgunaraðgerðir VG og Samfylkingar.
Fjölmiðlar reynið nú að standast þær væningar sem fólkið í landinu býður eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn er skotmark vinstrimanna í dag því þeir hafa engar lausnir á þeim brýnumálefnum þessarar þjóðar og reyna því allt sem þeir geta til að hilma yfir aumingjaskapinn hjá sjálfum sér.
Þessi blessaður maður er gjörsamlega ráðalaus, hann hefur nú engin ráð til þeirra 50% þjóðarinnar sem eru nú að tapa húseigum sínum í hendur banka og opinberra stofnana. Árni Páll talað þannig fyrri nokkrum mánuðum að hann hefði töfralausn til að byggja upp fyrirtæki og einstaklinga bara að Davíð Oddson fyrrverandi Seðlabankastjóri færi út úr Seðlabankanum.
Hvað hefur þessi Samfylking gert til að hjálpa fólkinu - já hvað skyldi þeim hafa dottið í hug, jú það var að hækka vaxtabætur um 25% já heil 25% hvað geta skuldara gert við þessa hækkun jú þeir eiga að greiða upp í veðbætur af lánum sem hækka um tugprósenta á mánuði hverjum. Þessar vaxtabætur eru dropi í hafi það á að sjálfsögðu að lækka lánin um lámark 20% já og það strax til að koma heimilium uppúr skuðafeni.
Þessi ríkistjórn hefur ekki komið með neinar lausnir til að bjara heimilum og fyrirtækjum í þessu landi.
Hvers vegna að kjósa þetta ráðalausa fólk!!!!!!!!
Það eru ekki margir dagar síðan Jóhanna og Steingrímur skalli kölluðu eftir öflugri verkstjórn á Alþingi Íslendinga - hvar er þessi verkstjórn? í dag nenntu stjórnarþingmenn ekki að vera í vinnunni - það var að margsinnis kalla eftir þessu fólki svo hægt væri að greiða atkvæði um ómerkileg mál já mál sem ekki liggur á að keyra í gengum þingið þessa fáu daga sem það á eftir að sitja - ég spyr er þetta fólk ekki í vinnu hjá okkur sem byggjum þetta land - við krefjumst þess að Jóhanna og félagar standi við stóru orðin og vinni fyrir fólkið í þessu landi sem er nú að missa alla trúa á þessu sambandi Samfylkingar og VG.
Það eru allir farnir að sjá að þessir einstaklingar eru nú bensínlausir út í miðri straumþungri á.
Burt með þetta fólk, það kanna ekki verkstjórn.
Hvar er skjaldborgin utanum heimilin ?? Og björgunarhringirnir sem átti að henda til sökkvandi fyrirtækja.
15.3.2009 | 20:19
Samfylkingar þingmaðurinn Árni Páll er hrokagikkur og stefnulaus.
Hvernig á venjulegt fólk að geta treyst á Árna Páli, hann var í Silfri Egils í dag. Árni Páll talar niður til fólksins sem hann þykist ætla að bjarga, þvílík hræsni. Ég get ekki trúað því að Samfylkingarfólk geti kosið þennan mann til ábyrgðastarfa fyrir samfélagið.
Það hlaut að koma að því að Össur Skarphéðinsson fengi á kjaftinn af eigin flokksmönnum en það gerðist í prófkjöri í Reykjavík um helgina.
Jóhann Sigurðardótti er hún virkilega eina formanaefnið sem Samfylkingin hefur fram að bjóða núna, þessi kona hefur aldrei geta unnið lengi við sama verkefnið- horfið á söguna.
Það er ekki á hverjum degi sem Sturla opnar á sér munninn eða skrifar greinar en betra er seint en aldrei, en blaðagreinin sem hann skrifar í mbl en þar hittir hann naglann á höfuðið, þessi ríkistjórn komst til valda í skjóli ofbeldisfullra aðgerða gegn Alþingi. Ráðherrar í þessari minnihlutastjórn verða nú eins og hingað til að þola réttmæta gagnrýni.
Hvar er viðskiptaráðherra er búið að senda hann í útlegð til USA? Kannski hefur hann ekki sama kjarkinn og hann hafði áður en hann varð ráðherra, en þá vafðist honum ekki tunga um tönn þegar hann var að lýsa því hvað þáverandi ríkistjórn átti að gera til að bjarga t.d heimilum þessa lands.
Viðskiptaráðherra hvar eru bjarghringirnir sem heimili og fyrirtækin eru að kalla eftir. Viðskiptaráðherra - þú verður að hætta að eiða tímanum í útlöndum, þú átt að vinna hér heima.
Deildu hart í þingsal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2009 | 13:33
Er Steingrímur J ekki fjármálaráherra, hvar eru lausnirnar ?????
Það eru nokkrar vikur síðan að öskurglapinn Steingrímur J fann þau ljótustu orð í íslensku málfari til að lýsa yfir vanþóknun sinni á vinnubrögðum fráfarandi ríkistjórnar í t.d vaxta og stýravaxta málum.
Nú er staðan sú að það verður að taka tillit til IMF, hvað breyttist? er þessum manni trúandi í dag.!
Steingrímur J öskurgapi getur sett vaxtalækkunar ferli í gang ef hann hefur til þess kjark. Nei, kjarkinn hefur Steingrímur J ekki.
Steingrímur er algjört grín og allur hans flokkur.
Við getum ekki kosið þetta VG fólk til áframhaldandi starfa fyrir land og þjóð í næstu kostinum 25. apríl n.k.
Vextir fara að lækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nú er ljóst að Ingibjörg Sólrún ætlar að halda áfram sem formaður Samfylkingarinnar, hún er ein mesti valdafíkill í íslenska stjórnmálaumhverfinu. Ingibjörg sem sat í þeirri ríkistjórn sem var við völd í mesta bankahruni heimsins. Er þessar konu virkilega treystandi, það finnst mér ekki. Og hafandi Jóhönnu Sig í forystusveit sem ætlaði að slá skjaldborg utanum heimilin, hvar er sú skjaldborg, hvar eru lausnirnar um að styrkja innviði fyrirtækja í þessu landi.
Samfylkingin hefur ekki staðið við eitt einasta atriði sem þessi hópur er búinn að gaspra um og nú þykist Jóhanna hafa sýnt öfluga verkstjórn. Í hverju liggur þessi verkstjórn?
Það eina sem liggur eftir þessa minnihlutastjórn var að koma Davíð frá. Og hvað nú ?? enginn Davíð til að kenna um allt og ekkert.
Ingibjörg býður sig fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ráðamenn í skýrslutökur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2009 | 22:14
Steingrímur J er algjör gúnga, nú skríður hann fyrir IMF fulltrúum.
Nú skríður Steingrímur J. fyrir fulltrúum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðunum sem eru staddir hér á landi. Það eru ekki liðinn mánuður síðan Steingrímur stóð í pontu á Alþingi og gargaði sig hásann um það að ef hann réði ríkjum þá skildi nú þessi IMF sjóður ekki komast upp með neitt múður.
En hver er nú staðreyndin, jú Steingrímur er eins og viljalaust verkfæri í höndum þessa manna.
Góðir fundir með IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar