24.1.2009 | 08:25
Hvers vegna að styðja VG. Þessum vg flokki er ekki treystandi.
Steingrímur sýndi það svo ekki verður umvillst, að ef hann kemst að með sitt hugmyndaflug af lausnum þá fer þessi öfluga íslenskuþjóð endanlega á hausinn.
Hann heldur að íslendingar telji miljónir, við erum örþjóð sem búum mörkum þess byggilega. Við sem höfum lifað í háfaöld og lengur þekkjum tíma þar sem ekki var miðið um að vera og þann tíma vil ég ekki sjá aftur. Ég man þann tíma þegar menn voru að berjast fyrir því að efla atvinnulífið út um land. Steingrímur var þá fulltrúi alþýðubandalagsins sáluga, þá var Steingrímur með niðurrifsstefnu á öllum hugmyndum sem fæddust þá, þannig er Steingrímur enn.
Við verðum að forða íslensuþjóðinni frá svona manni, það yrði okkar stærsta gæfuspor.
ALDEIG VG Í STJÓRN ÞVÍ ÞÁ FÆRUM VIÐ LÓÐRÉTT NIÐUR Í DJÚPIÐ.
Fylgi VG mælist rúmlega 32% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 21:02
Mörður Árnason og hans niðurrifs hópur kemur sínu fram.
Það er sorglegt að sjá Mörð Árnason og fylgifiska hans ráðast á liggjandi veikan formann, það liggur alveg ljóst fyrir að Marðar hópurinn var aldrei sáttur við samstarf núverandi stjórnarflokka og hefur Mörður reynt eins rjúpan við staur að setja stein í götu þessa samstarfs. Meira segja er Össur farinn að vinna að myndun stjórnar með VG sem hafa gefið út að ESB aðild komi aldrei til greina.
Ingibjörg sem nú liggur veik á sjúkrahúsi i Stokkhólmi verður nú berjast við splundraðan flokk sem áður gekk undir nafninu Samfylking, en hver eru nú nöfnin á öllum flokksbrotum sem voru í Samfylkingunni sálugu.
Þetta er ekki skemmtileg upplifun hjá núverandi fárveikum formanni Samfylkingar að horfa upp á flokkinn sinn splundrast í smá hluta vegna hræðslu og hugleysi flokksmanna.
Ég vil óska Ingibjögur Sólrun góðum bata í veikindum sínum.
Ingibjörg vill kosningar í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 06:45
Samfyrlkingin er í andaslitrum, hefur ekki úthald lengur
Það er soglegt að sjá og heyra t.d varaformann Samfylkingar ráðast aftan að veikum formanni sínum ásamt fleirum úr þeim hópi sem ekki hefur en sætt sig við að Ingibjörg var kosin formaður í stað Össurar.
Það er algjör skömm á þessu fólki sem fer svona á bak við sinn formann og ætlar að gera hallarbyltingu nú þegar Ingibjörg liggur sjúk á sjúkrahúsi, neðar komast menn ekki í ömurlegheitum.
Í Kastljósi í kvöld voru tveir pólar í viðtali hjá Sigmari. Sigmar var hógvær og kurteis í sínum spurningum, það er ekki sama um Sindra Sindrason að segja sem var algjör dóni í sínum þætti. En það sem vakti mestu athygli mína var að Steingrímur J. S. kemst enn og aftur upp með að svara ekki spurningum sem til hans er beint. Steingrímur virðist eiga í miklum erfiðleikum með að hemja skap sitt sem aftur bendir til mikilla skapbresta og mikillar óstjórnar á skapi sínu. Þetta kemur best í ljós þegar Steingrímur er spurður ítrekað og krafinn svara þá eru svör hans alltaf útúr snúningur.
Það kom ekki neitt fram hjá Steingrími í Kastljósi í kvöld sem hrópar að að hann verði valinn í næstu ríkistjórn. Hver skildi ástæðan vera, jú Steingrímur er svo tvöfaldur í roðinu að engu lagi er líkt, hann skammar þessa ríkistjórn vegna aðgerðar leysi og ekki síst Samfylkinguna en svo vill hann hoppa upp í rúm með Samfylkingunni í hinu orðin, þvílíkur bullustampur.
Ábyrgðarleysi að leysa upp stjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 21:22
Mikið skelfing leggst fréttamaðurinn Sindri Sindrason lágt.
Mikil er undirliggjandi íllska út í Sjálfstæðisflokkinn úr herbúðum Jóns Ásgeirs.Í kvöld þegar Sindri Sindrason fékk forsætisráðherra til að mæta í viðtal. Sindri var sér til ævarandi skammar í þessum þætti, hann virtist vera úttaugaður af reiði í garð Geirs Haarde forsætisráðherra í kvöld, sem lýsti sér þannig að Geir fékk aldrei tækifæri til að svara spurningum Sindra, en eins og alþjóð veit þá var Sindri upplýsingafulltrúi Jóns Ásgeirs. Ef fréttamaður vill láta fólkið hafa trú á sér þá verður hann að sýna lámarks kurteisi, en það gerði Sindri ekki í kvöld.
Þegar fulltrúar stjórnarflokkana eru fengnir til að mæta í spjallþætti þá verður að ætlast til lámarks kurteisi af þeim. Sigmundur Ernir hlýtur að taka þennan dreng á teppið og veita honum áminningu.
Sindri er meir maður ef hann biður forsætisráðherra afsökunar á framferði sínu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2009 | 20:36
Er ekki komið nóg af mistökum í stjórnsýslunni.!!
Væri nú ekki nær að stjórnvöld hættu að styðja við bakið á Rúv sem kostar þjóðina mörghundruðir miljónir og leggðu þá fjármuni í staðinn til Landhelgisgæslunnar sem er að vinna mikið starf á sviði björgunarstarfa á landi og legi.
Þetta er þjóðarskömm ef á að setja upp tugum starfsmanna sem margir hverjir hafa mikla reynslu á sínu svið.
Uppsagnir hjá Gæslunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.1.2009 | 20:07
Mikið skelfing leggst þessi Sigurbjörg lágt.
Það var skelfilegt að hlusta á þessa blessaða konu flytja ræðu sína í Háskólabíó. Að sækja tilvitnanir í smiðju ,,Gróu á leiti,, er alveg skelfilegt. Að upphrópa heilbryggðisráðherra á opnum fundi þar sem hann gat ekki svarað fyrir sig er en lákurlegra, af hverju kom Sigurbjörg ekki með eitthvað bitastæðara og merkilegra á þennan fund.
Það vantaði bara stóru krókudílatárinn og fundarmönnum var skemmt, þeim var skemmt vegna þess hve einföld þessi kona var.
Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.1.2009 | 19:54
Loksins, loksins.
Það var nú tími til kominn að auglýsa þessar bankastjórastöður, hvað vakti fyrir stjórn þessa lands að draga þetta svona lengi. Þetta fólk sem stjórnvöldu völdu í þessar stöður voru einfaldlega stjórnendateymi í gömlu gjaldþrotabönkunum og hafa ekkert traust út fyrir landsteinana þessa lands.
Vona bara að það verða ekki valdir flokksgæðingar í þessa stöður, það má ekki gerast.
Við verðum líka að velja nýja forystu fyrir stjórnmálaflokkana, þeir eru rúnir trausti.
Bankastjórastöður auglýstar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það verður ekki vart við að fólk tali um þessa himinháu vexti sem er að drepa bæði fyrirtæki og einstaklinga, 29. janúar næstkomandi er vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans, hvað gerist þá? Á að hækka stýrivexti en meira svo þeir sem eru með verðtryggð láni fari endanlega á hausinn. Það virðist allt snúast nú um þá sem hafa tekið myntkörfulán, en það má ekki gleyma öllum þeim sem eru með verðtryggð lán á aleigu sinni. Fjölmiðlar verða að hamra á þessu óréttlæti, ekki gleyma sér í pólitískum flokkaflækingum.
Fjölmiðlar eru sofnaðir á vaktinni, það er sorglegt til að vita að 4. valdið er að missa áhuga á efnahagsástandi þjóðarinnar. Í staðinn eru fjölmiðlar uppteknir af Gasa, víst á það fólk bátt, en við búum á Íslandi, fjölmiðlar mega ekki gleyma hlutverki sínu.
Það verður að krefja stjórnvöld svara ekki láta þau komast um með að gera ekki neitt, það er ekki ásættanlegt. Við hin þögli meirihluti krefjumst svara.
Það verður að koma gengismálum þjóðarinnar í lag, við byggjum þetta land erum eins og í brotsjó, við vitum ekki hvort bátnum hvolfir eða réttir við. Þetta gengur ekki lengur, en og aftur látum stjórnvöld ekki í friði. Stjórnvöld verða að skella sér í vertíðar búninginn, taka hendur úr vösum og ráðast á árarnar svo hægt verði að ná bátnum úr brotsjónum.
5.1.2009 | 21:19
Loksins er einhver úr Sjálfstæðisflokknum farinn að benda á leiðir.
Þau orð sem Bjarni Ben hefur látið frá sér fara á fundi auðlindahóps Evrópumála Sjálfstæðisflokksins eru í tíma töluð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert neitt til að upplýsa þjóðina um stefnu í peningamálum, sú stefna Geirs Haarde er að gera ekki neitt hefur hlotið skipsbrot.
Sjálfstæðisflokkinn vantar mann sem þorir að taka ákvarðanir og framfylgja þeim, þessa forystu hefur Sjálfstæðisflokkinn skort þ.e kjark og þor.
Bjarni Ben virðist hafa þessa eiginleika, við sem eru ósátt við núverandi forystu verðum hópast saman til að hvetja Bjarna til að ganga til verks og bjóða sig fram til forystu í Sjálfstæðisflokknum á næsta landsfundi flokksins sem verður innan fárra daga. Ef Sjálfstæðisflokkurinn finnur ekki öfluga forystusveit á næsta landsfundi flokksins þá verður Sjálfstæðisflokkurinn ekki með í næstu ríkistjórn, því fólk hefur því miður ekki lengur trú þessari forystusveit sem nú er að stýra íslensuþjóðinni beint í heljargreipar, fyrirtæki að verða gjaldþrota, gjaldeyrismáli í algjörlegum ólestri, fólkið er að missa allar eigur sínar, skólar og heibryggðiskerfi eru flosnar upp, fólk flýr land í stórum hópum og svo framvegis.
Ég skora á þig Bjarni Benediktsson að þú gefir nú kost á þér til formanns fyrir Sjálfstæðisflokkinn á næsta landsfundi, eins vil ég sjá Illuga Gunnarsson, Sigurð Kára, Gunnlaug Þór koma nú ákveðnir fram og bjóða sig til forystuhlutverka.
Flokksforystan fái opið umboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Hulda saksóknari: Tökum þetta ekki til greina
- Óþekktir drónar sáust yfir breskum herflugvöllum
- Rabbíni fannst myrtur
- Yfir 40 billjónir til þróunarríkja á ári
- Skotinn til bana eftir skothríð við sendiráð Ísrael
- Lagt til að fátækari þjóðum verði hjálpað
- Á sjötta tug látnir eftir loftárásir Ísraela
- Bert veldur miklu raski á Bretlandseyjum
- Einn handtekinn eftir að kona fannst látin
- Erdogan fagnar handtökuskipuninni