20.2.2009 | 20:26
Seðlabanki Jóhönnu Sig forsætisráðherra.
Er þetta virkilega eina málið sem þessi ríkistjórn leggur mestan þunga á það er að koma Davíð Oddsyni út úr bankanaum. Því lík sóun á tíma alþingis. Mér finnst önnur mál miklu alvarlegri og miklu meira aðkallandi. Hvað mál eru það.?
Í fyrstalagi þá eru málefni fyrirtækja í þessu landi, það verður að koma atvinnulífinu í gang með öllum tiltækum ráðum. Það kom fram í fréttum í þessari vikur að minnstakosti 3-4000 fyrirtæki myndu fara í þrót á þessu ári 10-15 fyrirtæki á dag já á dag. Hvað verður um þetta fólk, eigum við virkilega eftir að sjá fólkið flýja til Kanada og norðurlandana. Hvar er þessi ríkistjórn og hvað er hún að gera????????
Í örðulagi þá eru það heimili þessa lands, við heyrum á hverju kvöldi fréttir af því að fólk er að missa eignir sínar á uppboðum og fólkinu einfaldlega hent út á guð og gaddinn. Þessari ríkistjórn væri nú nær að vinna fyrir fólkið ekki leika sér allan daginn á þingi við að fjalla um ómerkileg mál.
Í þriðjalagi þá verður þessi ríkistjórn að gefa út loðnuveiði leyfi á 30-50 þúsund tonn, svo hægt verði að frysta loðnu hrogn og bræða loðnuna því fólkinu vantar vinnu og það þarf að skapa gjaldeyristekjur.
Í fjórðalagi þá verður þessi ríkistjórn að koma gjaldeyrismálum þessa þjóðar í skjól svo atvinnulífið fari að snúast aftur.
Í fimtalagi þá verður þessi ríkistjórn að hætta þessum hroka og hætta að tala niður til fólksins.
Stefnt að lokaumræðu á mánudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Fjármál, Fjölmiðlar | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef einhver með smá glóru í kollinum slæðist inn í þetta blessað þinghús kemur hann sér í burtu í hvelli. Hún var nú ekki gáfuleg fréttin af þingmanninum
í mogganum dag sem hafði farið á skítanámskeið hjá Jónínu Ben. Ég segi nú bara eins og einn glóruleysinginn úr þinghúsinu Guð blessi Ísland.
lelli (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.