8.11.2008 | 17:38
Það hlaut að koma að þessu.
Þegar fólkinu í landinu finnst því misboðið þá er þetta ein leið til að láta í ljósi skoðanir sínar. En mér finnst sumt af þessu fólki sem er að mótmæla ekki vera viss um hverju er verið að mótmæla. Getur það verið ? Getur það verið að sumt af þeim sem eru að skipuleggja þessi mótmæli séu bara auðnuleysingar eins og Kolfinna Baldvinsd og Hörður Torfa. Er Hörður Tofa ekki kominn í sama hóp og hann flúði fyrir nokkrum árum - en það kallast einelti, Hörður og Kolfinna eru á þessari línu, þetta er lélegur málflutingur. Fólkið veður að mótmæla af skinnsemi og án múgsefjun og trillings.
Ríkistjórnin verður að koma með skýringar og svör um hvers vegna nýju bankaráðin eru pólitísk og hvers vegna ekki er kominn lausn á gjaldeyrisviðskiptum við útlönd. Fyrirtækjum er að blæða út vegna þess að fjármang vantar, það er eins og ríkistjórnin sé kominn í frí, hætt að hugsa og framkvæma - lætur hlutina bara gerast án afskipta.
Við sem búum í þessu landi krefjumst þess að ríkistjórnin og ekki síst Sjálfstæðsiflokkurinn ákveði hvaða leið á að fara í gjaldeyrismálum. Ég vil að við tökum upp evruna og hefjum viðræður við ESB ekki seinna en stax. Ef forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ekki þor til að taka ákvörðun, þá hljótum við sem viljum evruna fara í þá vinna að kjúfa Sjálfstæðisflokkinn þ.e er með eða á móti evru, það er vegna þess að við getum ekki beðið lengur. Sjálfstæðismenn látið nú í ykkur heyra verum ekki hræddi við að láta í ljósi skoðanir ykkar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2008 | 22:38
Það er kominn tími til að frysta verðtryggðíbúðarlán og það strax.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 20:12
Burt með aðstoðarmenn Alþingismanna.
Alþingismenn eiga að segja upp öllum sínum aðstoðarmönnum ekki seinna en núna, fyrir það fyrsta tilhvers var verið að ráða aðstoðarmenn, þessir einstaklingar sem sitja á þingi eiga einfaldlega að vinna sín verk sjálft því ekki skortir þeim aðgang að aðstoð út um allan bæ. Nú á sama tíma og öll þjóðin skeflur af áhyggjum um framtíð sína þá leyfa alþingismenn sér að bruðla svona með fé almennings.
Hvenær endar þetta endalausa sukk og svínarí í kringum stjórnarflokkana, nú síðast eru menn skipaðir til að rannsaka fyrir tæki sem synir þeirra hafa umsjón með.
Það hefur alveg gleymst að tala um það af Samfylkingarfólki að Jón Sigurðsson fyrrverandi ráðherra hefur verð höfundur af öllum yfirtökum á bönkum og hann situr á mörgum stöðum beggja megin við borðið. Trúverðuleiki Samfylkingarinnar er algerlega brostinn og þessi flokkur er algjör froðsnakkari, sem er gefandi út allskonar ýfirlýsingar svo sem að Seðlabankinn sé ekki á þeirra ábyrgð, því líkt bull.
2.11.2008 | 21:28
Þorgerður Katrín og ESB
2.11.2008 | 21:15
VG og Steingrímur
Að hlusta á VG þessa dagana þá verður manni flökurt, þeir þykjast hafa ráð undir rifi hverju og VG þykist geta leyst efnahagsmálin á svipstundu en hverjar skyldu lausnirnar vera. Að kjósa og hvað svo.!!
Ekki vill VG fara í viðræður við ESB, ég hlustaði á Steingrím í dag, það kom ekkert fram í þessum þætti annað en að við íslendingar gætum hugsanlega tekið upp viðræður við Normenn um að taka upp norskukrónuna, ekki leysir það brýnustu mál okkar nú.
Nei Steingrímur og félagar verða að gera meira en bara baula á núverandi stjórn. VG ætti frekar að koma með góðar hugmyndir að lausnum sem gætu komið fólkinu til góða sem nú er t.d að missa vinnuna og jafnvel heimili sín.
1.11.2008 | 18:14
Nýi Glitnir banki.
Eftir að hafa hlustað á fréttir um hvernig nýji bankastjórinn í Glitni hefur ,,gleymt,, að greiða fyrir kaup á hlutabréfum í gamla Glitni og allt verið í plati, er ekki í lagi með þessa konu - hún að að sjálfsögðu að segja afsér, ekki seinna en núna. Venjulegur maður á götunnin getur ekki ,,gelymt,, að greiða 180 miljónir kr sí svona - fólkið á götunni getur ekki geymt að greiða eina krónu áður en bankinn sendir inn kröfubréf, NEI,, svona lagað eigum við fólkið í landinu ekki að líða. Burtu kona og finndu þér annað að gera. Okkur vantar heiðarlegt fólk í þessa stöðu.
Laun þessara nýju bankastjóra eru hróplega of há 1750 þús kr pr mán hvaða bull er þetta á sama tíma og almennur launþegi er að taka á sig launalækkun allt að 10% + þá eru margir að missa vinnuna. Við verðum að krefjast af þessu fólki að það hafi svolítinn snefil af samvisku já samvisku. Rétt laun þessa þessa einstaklinga er í mesta lagi 800 þús kr pr mán með öllum aukasponnslum.
Halló -- þessir bankastjórar eru ríkisstarfsmenn, og hvað er forsætisráðherran með í laun -- Halló - er ekki alltí lagi??.
1.11.2008 | 11:14
Uppsagnir og brosnar vonir:
Það sem dynur nú yfir íslensu þjóðina er skelfilegt - við hljótum að krejast þess að gjaldeyrismálum verði komið í það horf að hægt verði að búa á íslandi og treysta því að gengið verði ekki fallð um fleiri tugi prósenta á einum degi.
Nú þegar einstaklingar eru að fá uppsagnarbréf þá er það skelfileg höfnun, höfnun sem engin sem ekki lendir í getur sett sig í þau spor. Stéttarfélög og fyrirtæki verða að hjálpa þessum einstaklingum eins mikið og nokkur mögleiki er til.
Atvinnulífið er að stöðvarst með skelfilegum afleiðingum, fólki er sagt upp í þúsundatali - hvar á fólkið að fá vinnu nú þegar stjórnvöld láta fyrirtæki og einstaklinga missa allar sínar eignir með þessu gengisrugli. Við viljum fara strax í könnunarviðræður við EB það mun styrkja okkur sem þjóð og koma undir okkur fótunum mjög fljótt - Sjálfstæðisflokkurinn verður að standa í báða fætur nú annars klofnar flokkurinn og verð ég fjlótur að ganga í þann hluta flokksins sem þorir að leggja af stað í þá vegferð að sækja um aðildarviðræður við EB. Ég er búinn að vera skráður félagi í Sjálfstæðisflokkum í marga áratungi en nú eru komnir verulegir bresti í þá tryggð. Ríkistjórnin verður að hafa þann kjark og þor til að láta á þetta reyna - það er ekki hægt að stinga hausnum í sandinn og halda að hlutirnir leysist af sjálfum sér.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar