Færsluflokkur: Dægurmál

Loksins fékk Árni Páll rasskell hjá Samfylkingarfólki í kosningu til varaformans.

Þessi blessaður maður er gjörsamlega ráðalaus, hann hefur nú engin ráð til þeirra 50% þjóðarinnar sem eru nú að tapa húseigum sínum í hendur banka og opinberra stofnana. Árni Páll talað þannig fyrri nokkrum mánuðum að hann hefði töfralausn til að byggja upp fyrirtæki og einstaklinga bara að Davíð Oddson fyrrverandi Seðlabankastjóri færi út úr Seðlabankanum.

Hvað hefur þessi Samfylking gert til að hjálpa fólkinu - já hvað skyldi þeim hafa dottið í hug, jú það var að hækka vaxtabætur um 25% já heil 25% hvað geta skuldara gert við þessa hækkun jú þeir eiga  að greiða upp í veðbætur af lánum sem hækka um tugprósenta á mánuði hverjum. Þessar vaxtabætur eru dropi í hafi það á að sjálfsögðu að lækka lánin um lámark 20% já og það strax til að koma heimilium uppúr skuðafeni.

Þessi ríkistjórn hefur ekki komið með neinar lausnir til að bjara heimilum og fyrirtækjum í þessu landi.

Hvers vegna að kjósa þetta ráðalausa fólk!!!!!!!! 

 


Jóhanna Sig - Hvar er verkstjórnin, ert þú búinn að gleyma hlutverkinu???

Það eru ekki margir dagar síðan Jóhanna og Steingrímur skalli kölluðu eftir öflugri verkstjórn á Alþingi Íslendinga - hvar er þessi verkstjórn? í dag nenntu stjórnarþingmenn ekki að vera í vinnunni - það var að margsinnis kalla eftir þessu fólki  svo hægt væri að greiða atkvæði um ómerkileg mál já mál sem ekki liggur á að keyra í gengum þingið þessa fáu daga sem það á eftir að sitja - ég spyr er þetta fólk ekki í vinnu hjá okkur sem byggjum þetta land - við krefjumst þess að Jóhanna og félagar standi við stóru orðin og vinni fyrir fólkið í þessu landi sem er nú að missa alla trúa á þessu sambandi Samfylkingar og VG.

Það eru allir farnir að sjá að þessir einstaklingar eru nú bensínlausir út í miðri straumþungri á.

Burt með þetta fólk, það kanna ekki verkstjórn.

Hvar er skjaldborgin utanum heimilin ??  Og björgunarhringirnir sem átti að henda til sökkvandi fyrirtækja.


Samfylkingar þingmaðurinn Árni Páll er hrokagikkur og stefnulaus.

Hvernig á venjulegt fólk að geta treyst á Árna Páli, hann var í Silfri Egils í dag. Árni Páll  talar niður til fólksins sem hann þykist ætla að bjarga, þvílík hræsni. Ég get ekki trúað því að Samfylkingarfólk geti kosið þennan mann til ábyrgðastarfa fyrir samfélagið.

Það hlaut að koma að því að Össur Skarphéðinsson fengi á kjaftinn af eigin flokksmönnum en það gerðist í prófkjöri í Reykjavík um helgina.

Jóhann Sigurðardótti er hún virkilega eina formanaefnið sem Samfylkingin hefur fram að bjóða núna, þessi kona hefur aldrei geta unnið lengi við sama verkefnið- horfið á söguna.


Sturla Böðvarsson stendur sig vel - Steingrímur J. þolir aldrei réttmæta gagnrýni

Það er ekki á hverjum degi sem Sturla opnar á sér munninn eða skrifar greinar en betra er seint en aldrei, en blaðagreinin sem hann skrifar í mbl en þar hittir hann naglann á höfuðið, þessi ríkistjórn komst til valda í skjóli ofbeldisfullra aðgerða gegn Alþingi. Ráðherrar í þessari minnihlutastjórn verða nú eins og hingað til að þola réttmæta gagnrýni.

Hvar er viðskiptaráðherra er búið að senda hann í útlegð til USA? Kannski hefur hann ekki sama kjarkinn og hann hafði áður en hann varð ráðherra, en þá vafðist honum ekki tunga um tönn þegar hann var að lýsa því hvað þáverandi ríkistjórn átti að gera til að bjarga t.d heimilum þessa lands.

Viðskiptaráðherra  hvar eru bjarghringirnir sem heimili og fyrirtækin eru að kalla eftir. Viðskiptaráðherra -  þú verður að hætta að eiða tímanum í útlöndum, þú átt að vinna hér heima.


mbl.is Deildu hart í þingsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Steingrímur J ekki fjármálaráherra, hvar eru lausnirnar ?????

Það eru nokkrar vikur síðan að öskurglapinn Steingrímur J fann þau ljótustu orð í íslensku málfari til að lýsa yfir vanþóknun sinni á vinnubrögðum fráfarandi ríkistjórnar í t.d vaxta og stýravaxta málum.

Nú er staðan sú að það verður að taka tillit til IMF, hvað breyttist? er þessum manni trúandi í dag.!

Steingrímur J öskurgapi getur sett vaxtalækkunar ferli í gang ef hann hefur til þess kjark. Nei, kjarkinn hefur Steingrímur J ekki. 

Steingrímur er algjört grín og allur hans flokkur.

Við getum ekki kosið þetta VG fólk til áframhaldandi starfa fyrir land og þjóð í næstu kostinum 25. apríl n.k.


mbl.is Vextir fara að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir mestu valdafíklar íslandssögunar verða í forystusveit Samfylkingarinnar

Nú er ljóst að Ingibjörg Sólrún ætlar að halda áfram sem formaður Samfylkingarinnar, hún er ein mesti valdafíkill í íslenska stjórnmálaumhverfinu. Ingibjörg sem sat í þeirri  ríkistjórn sem var við völd í mesta bankahruni heimsins. Er þessar konu virkilega treystandi, það finnst mér ekki. Og hafandi Jóhönnu Sig í forystusveit sem ætlaði að slá skjaldborg utanum heimilin, hvar er sú skjaldborg, hvar eru lausnirnar um að styrkja innviði fyrirtækja í þessu landi.

Samfylkingin hefur ekki staðið við eitt einasta atriði sem þessi hópur er búinn að gaspra um og nú  þykist Jóhanna  hafa sýnt öfluga verkstjórn. Í hverju liggur þessi verkstjórn?

Það eina sem liggur eftir þessa minnihlutastjórn var að koma Davíð frá. Og hvað nú ?? enginn Davíð til að kenna um allt og ekkert.


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarnefnd um bankahrunið, kominn tími til að skoða hversvegna bankahrun.

Það hefur ekki farið á milli mála að hér á Íslandi var bankahrun, með skelfilegum afleiðingum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, það hefur enginn verið dreginn til ábyrgðar en sem komið er. Þessi rannsóknarnefnd um bankahrunið hlýtur að kalla ráðherra, bankastjóra og alla sem hafa komið nærri þessari fjármálaútrás og síðan hruni til skýrslutöku.
mbl.is Ráðamenn í skýrslutökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J er algjör gúnga, nú skríður hann fyrir IMF fulltrúum.

Nú skríður Steingrímur J. fyrir fulltrúum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðunum sem eru staddir hér á landi. Það eru ekki liðinn mánuður síðan Steingrímur stóð í pontu á Alþingi og gargaði sig hásann um það að ef hann réði ríkjum þá skildi nú þessi IMF sjóður ekki komast upp með neitt múður.

En hver er nú staðreyndin, jú Steingrímur er eins og viljalaust verkfæri í höndum þessa manna.


mbl.is Góðir fundir með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddson er bara flottur, hann er langbestur og verður það um ókomna ár.

Það er bara vonandi að Davíð Oddson komi með þær upplýsingar sem hann býr yfir þegar Jóhanna verður búinn að bola Davíð út úr Seðlabankanum.

Það er vonandi að Davíð hafi í pokahorninu upplýsingar um það hve djúpt Samfylkingin er sokkin inní útrása herinn.

Það vonandi að nú gefist Jóhönnu tími til að slá skjaldborg utanum heimilin í landinu en því loforði hefur hún gleymt í geðvonskukasti því sem hún er föst í.

 


mbl.is Seðlabankafrumvarp afgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabanki Jóhönnu Sig forsætisráðherra.

Er þetta virkilega eina málið sem þessi ríkistjórn leggur mestan þunga á það er að koma Davíð Oddsyni út úr bankanaum. Því lík sóun á tíma alþingis. Mér finnst önnur mál miklu alvarlegri og miklu meira aðkallandi. Hvað mál eru það.?

Í fyrstalagi þá eru málefni fyrirtækja í þessu landi, það verður að koma atvinnulífinu í gang með öllum tiltækum ráðum. Það kom fram í fréttum í þessari vikur að minnstakosti 3-4000 fyrirtæki myndu fara í þrót á þessu ári 10-15 fyrirtæki á dag já á dag. Hvað verður um þetta fólk, eigum við virkilega eftir að sjá fólkið flýja til Kanada og norðurlandana. Hvar er þessi ríkistjórn og hvað er hún að gera????????

Í örðulagi þá eru það heimili þessa lands, við heyrum  á hverju kvöldi fréttir af því að fólk er að missa eignir sínar á uppboðum og fólkinu einfaldlega hent út á guð og gaddinn. Þessari ríkistjórn væri nú nær að vinna fyrir fólkið ekki leika sér allan daginn á þingi við að fjalla um ómerkileg mál.

Í þriðjalagi þá verður þessi ríkistjórn að gefa út loðnuveiði leyfi á 30-50 þúsund tonn, svo hægt verði að  frysta loðnu hrogn og bræða loðnuna því fólkinu vantar vinnu og það þarf að skapa gjaldeyristekjur.

Í fjórðalagi þá verður þessi ríkistjórn að koma gjaldeyrismálum þessa þjóðar í skjól svo atvinnulífið fari að snúast aftur.

Í fimtalagi þá verður þessi ríkistjórn að hætta þessum hroka og hætta að tala niður til fólksins.


mbl.is Stefnt að lokaumræðu á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Skúli Sigurðsson
Skúli Sigurðsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband