Færsluflokkur: Dægurmál
12.2.2009 | 21:21
Það er eitthvað að í höfðinu á Össuri Skarphéðinssyni.
Það hefur eitthvað bilast í höfðinu á Össuri, hann virðist ekki með nokkru móti vita hvert Samfylkingin er að stefna í Evrópumálum. Á tímum fyrri ríkistjórnar þá var Samfylkingin stöðugt með hótanir í garð Sjálfstæðisflokksins um að flokkurinn tæki afstöðu með inngöngu í EBS. Er þetta allt gleymt vegna innri átaka í Samfylkingunni sem nú er blóðug upp að öxlum í valdabrölti að innan.
Hver getur svo treyst flokki er með strengjabrúðu sem forsætisráðherra. Hvar er skjaldborgin utan um heimili í landinu og utan um fyrirtækin sem forsætisráðherra hefur verið svo tíðrætt um síðu vikur og mánuði. Ekki bólar á skjaldborginni, því lík hræsni.
Þessi hópur sem ætlaði að kippa öllu í lag á nokkrum dögum er nú að missa sig í innri vitleysu og innriátökum um það eitt að koma sínu fólki í ráð og nefndir.
Össur reyndu nú að koma einhverjum málum áfram á þingi en ekki eiða heilu og hálfu dögunum í rökleysu og skítkast i aðra þingmenn. Össur líttu þér nær.
Eitt hænufet til Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2009 | 15:58
Fjármál Lúðvíks Bergvinssonar - það var kominn tími til að fjármál Lúðvíks væru skoðuð.
Lúðvík Bergvinsson hefur talað þannig að hann hafi ekki tekið þátt í fjörinu með útrásarvíkingum þessa lands, en annað er nú komið á daginn og á Agnes Bragadóttir hrósskilið fyrir að fara ofan í þessi mál, vonandi tekur hún fleiri Samfylkingarmenn til skoðunar, því það skildi nú ekki vera að þar leynist hin einkennilegustu mál sem vert væri að koma með á yfirborðið sem fyrst.
Agnes blaðamaður mbl gott hjá þér!
Agnes, skoðaðu líka VG fólkið og tengsl þeirra við útrásina!
Fjármál Lúðvíks komu í veg fyrir ráðherrastól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Allir hlutir eiga sér skýringar, það var í langan tíma ljóst að Sigmundir Ernir var póltískur fréttamaður og eftir á að hyggja þá dró hann taum Samfylkingar í öllum fréttatímum. Nú er þetta kristaltært, að fréttamenn eru alltaf á mála hjá einhverjum stjórnmálaflokki. Ef þið hafið hlustað á úrvarp Sögu hvaða stjórnmálafokkur skyldi nú eiga mest þar inni og hvaða stjórnmálaflokkur fær mest að kenna á því og fær flest fúkyrðin, ekki er það Samfylkingin, nei nei.
Það er flokkurinn sem hefur komið þessari þjóð út úr moldarkofunum, og hefur byggt upp landið og gert það að einu best menntaða landi heims, en það er Sjálfstæðisflokkurinn.
Ekki finnst mér Sigmundur Ernir vera uppbyggilegur stjórnmálamaður, hann minnir mig á Gísla Martein sem fékk bara fylgi vegna þess að hann var búinn að vera á sjónvarpsskjánum í nokkur ár og staðið sig vel, en hvernig fór, þannig verður með Sigmund Erni.
Sigmundur Ernir finndu þér annað að gera!
Sigmundur Ernir í pólitíkina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.2.2009 | 22:30
VG við sama heygarnshornið ,,alltaf á móti,, ekki skapa atvinntækifæri það má alls ekki.
Það kom skýrt fram á fundi uppá Skaga í kvöld að Steingrímur J. og VG flokkurinn vill engin ný atvinnutækifæri í þessu landi. Umhverfisráðherra á móti nýjum atvinnutækifærum, fjármála-sjárvarútvegs-og landbúnaðarráðherra er líka á móti allri nýtingu t.d hval og skapa 2-300 störf. Þetta eru sorgleg staðreynd til fólksins sem er að missa vinnuna og veit ekki hvað á að taka til bragðs.
Jóhanna forsætisráðherra hefur ekki staðið við stóruorðin um það að hún ætli að hjálpa því fólki sem nú er búið að missa allt sitt og vonina líka. Stór hluti þjóðarinnar hefur skömm á þessari konu.
Nýi viðskiptaráðherrann var ekki lengi að skipta um skoðun er varðar íbúðaskuldara, já á einni nóttu var hann búinn að snúa svari sínu á haus, hvaða bull er þetta nú, hverjum eigum við að treysta.
Eitt er vist að það er ekki hægt að treysta VG og alls ekki Samfylkingunni sem er snjóstormur þú veist ekki hvar skaflinn lendir eða hver stór snjóskaflinn verður. En það verður eins með Samfylkinguna og náttúrulögmálið hún bráðnar með vorinu og hverfur það sama verður með VG.
Vond stjórnsýsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þeir sem hafa séð eða heyrt málefnasamning þessarar ,,ríkistjórnar,, verða fyrir miklum vonbrigðum, hvar eru allar lausnirnar sem Steingrímur J með og loforðalisti Samfylkingarinnar - hvað á að gera í gjaldeyrismálum, málefnum húseiganda, hvernig ætla þau að koma fótum undir atvinnureksturinn í landinu.
Þetta eru bara froða og aumingja háttur, valda fíkn án markmiða, en það er gott að fólk sjái það svart á hvítur hver miklir bullustampar þetta ,,forystu,, fólk er hjá VG og Samfylkingum.
Ég hef hina mestu skömm á þessu liði.
Slá skjaldborg um heimilin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nær Evrópu með Vinstri grænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2009 | 22:21
Steini skalli (Steingrímur J) VG er búinn að fara magar hringi í dag, hvað gerist á morgun?
Það aldeilis gaman að fylgjast með hringli formanns VG, einn daginn er hann á móti láni úr Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hinn daginn jafnvel með og hvað svo. Steingrímur hlýtur að fara í fjármálaráðherrastólinn, hvað gerist þá, nú getur hann ekki bruðlað með peninga sem ekki eru til. Steingrímur hækkar væntanlega skatta um tugi prósenta, það er hans óskastaða að setja allt á hausinn það er þessu flokki efst í huga. Kannski verður VG formaðurinn bara á móti öllu eins og hann hefur alltaf verðið.
Við launþegar og íbúðar eigendur hjólum að hlakka til að fá til baka allar verðbæturnar á lánin okkar þegar þessi ,,vinstri flokkar hafa myndað ríkistjórn,,
Nú eru flokkmenn Ingibjargar Sólrúnar búnir að koma henni útúr pólitík það eru þakkir þessara flokksmanna til hennar. Það var skelfilegt að sjá silfurskeiðamanninn Ágúst Ólaf í sjónvarpinu í kvöld þegar hann var að reyna að svara því hvers vegna hann væri alltaf hafður útundan í flokknum, Ágúst Ólafur er spjátrungur í flokki samfylkingar sem saman stendur af mögum sprengibrotum.
Ný ríkisstjórn í kortunum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2009 | 09:29
Geir Haarde hættir. Nú horfa Sjálfstæðismenn eftir nýju formannsefni.
Nú er Geir Haarde búinn að ákveða að hætta sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Þá verða flokksmenn að horfa á flóru þeirra manna sem best verður treystandi til þessa starfa. Eins og komið hefur fram í skoðanakönnunum þá er fylgi flokksins í lámarki sé horft til nokkurra ára til baka.
Það eru tveir einstaklingar sem koma sterklega til greina sem formannsefni Sjálfstæðisflokksins, í fyrstalagi er það Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Það sem mælir með Hönnu Birnu er kraftur hennar í að halda borgarstjórninni á jörðinni og vinna að málefnum borgarinnar utan við fjölmiðla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2009 | 08:25
Hvers vegna að styðja VG. Þessum vg flokki er ekki treystandi.
Steingrímur sýndi það svo ekki verður umvillst, að ef hann kemst að með sitt hugmyndaflug af lausnum þá fer þessi öfluga íslenskuþjóð endanlega á hausinn.
Hann heldur að íslendingar telji miljónir, við erum örþjóð sem búum mörkum þess byggilega. Við sem höfum lifað í háfaöld og lengur þekkjum tíma þar sem ekki var miðið um að vera og þann tíma vil ég ekki sjá aftur. Ég man þann tíma þegar menn voru að berjast fyrir því að efla atvinnulífið út um land. Steingrímur var þá fulltrúi alþýðubandalagsins sáluga, þá var Steingrímur með niðurrifsstefnu á öllum hugmyndum sem fæddust þá, þannig er Steingrímur enn.
Við verðum að forða íslensuþjóðinni frá svona manni, það yrði okkar stærsta gæfuspor.
ALDEIG VG Í STJÓRN ÞVÍ ÞÁ FÆRUM VIÐ LÓÐRÉTT NIÐUR Í DJÚPIÐ.
Fylgi VG mælist rúmlega 32% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.1.2009 | 21:02
Mörður Árnason og hans niðurrifs hópur kemur sínu fram.
Það er sorglegt að sjá Mörð Árnason og fylgifiska hans ráðast á liggjandi veikan formann, það liggur alveg ljóst fyrir að Marðar hópurinn var aldrei sáttur við samstarf núverandi stjórnarflokka og hefur Mörður reynt eins rjúpan við staur að setja stein í götu þessa samstarfs. Meira segja er Össur farinn að vinna að myndun stjórnar með VG sem hafa gefið út að ESB aðild komi aldrei til greina.
Ingibjörg sem nú liggur veik á sjúkrahúsi i Stokkhólmi verður nú berjast við splundraðan flokk sem áður gekk undir nafninu Samfylking, en hver eru nú nöfnin á öllum flokksbrotum sem voru í Samfylkingunni sálugu.
Þetta er ekki skemmtileg upplifun hjá núverandi fárveikum formanni Samfylkingar að horfa upp á flokkinn sinn splundrast í smá hluta vegna hræðslu og hugleysi flokksmanna.
Ég vil óska Ingibjögur Sólrun góðum bata í veikindum sínum.
Ingibjörg vill kosningar í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Íþróttir
- Fram Stjarnan kl. 20, bein lýsing
- Slóveninn að glíma við meiðsli
- Fyrrverandi landsliðsmanni hraðað á sjúkrahús
- Rannsaka enn mál dómarans
- Verður áfram í Garðabæ
- Hafsteinn Óli lék fyrir Grænhöfðaeyjar
- Kvaddur hjá kanadíska liðinu
- Ráðinn aðstoðarþjálfari Fjölnis
- Snýr aftur til Íslandsmeistaranna
- Tap gegn Englandi í átta marka leik