Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Kjósum nýja forystu til starfa í Sjálfstæðsiflokknum.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf nýja forystu, Geir H. Haarde virðist ekki ráða við þetta stóra gjaldþrota mál íslensku þjóðarinnar. Geir sættir sig við að Davíð sitji í Seðlabankanum, Geir sættir sig við að Árni Matt sitji en sem fjármálaráðherra, Geir sættir sig við að varaformaður flokksins sé innvinkaður í fjármálasukkið hjá Kaupþingi og svona má lengi telja. Nú síðast kemur utanríkisráðherra og tilkynnir þjóðinni að ef Geir sitji ekki eins og hún vill þá verða kosningar. Hvers vegna er þessi staða kominn upp, jú  það liggur alveg dagljóst fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki haft kjark til að taka ákvörðun hvert skal haldið t.d í gjaldeyrismálum, verðtryggingum á húsnæðismálum, launamálum bankastjóra, launum forstjóra fjármálaeftirlits og svo framvegis. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar bara að láta fasteignir landsmanna brenna upp. Sjálfstæðisflokkurinn hefur innan sinna raða mann eins og Pétur Blöndal sem sagði í útvarpsþætti um daginn að það væri í lagi að ungafólkið tapaði sínum fasteignum vegna þess að þessar eignir hefðu verið  keyptar of dýru verði - hverskonar málflutningur er þetta, Geir á að taka svona mál föstum tökum en hann hefur ekki kjark né þor. Auðvita á Geir Haarde að hætta núna hann er ekki maður sem getur staðið í brúnni við þessar erfiðu aðstæður, hann er bara fínn á hliðarlínunni.

Það verður að gera byltingu í að endurnýja forystu Sjálfstæðisflokksins  á næsta landsfundi, ég vil sjá Bjarna Ben sem formann flokksins og Guðlaug Þ sem varaformann þessir strákar er sú framfarasveit sem kann,getur, þorir og veit hvert á að stefna í t.d gjaldeyrismálum. Ég skora á þessa stráka að láta til skara skríða og fara að vinna í því að afla sér fylgis fyrir næsta landsþing.

   


SA. hvers vegna ekki birta þjóðinni niðurstöðuna ?

Tek undir með þeim sem vilja sjá niðurstöðu þessarar könnunar, það skipti okkur máli að sjá hver afstaða SA félaga er í þessu stóra máli sem eru, vegna þess að ég er ekki viss um að það sé okkur til bjargar að ganga í til samstarfs við ESB. Við  íslendingar eigum að taka upp gjaldeyristengingu við Norskukrónuna, vegna þess að þessar þjóðir eru í samstarfi í EES og mjög margt annað er svipað hjá þessum þjóðum svo sem fiskveiðar, orkumál og margt fleira.
mbl.is Dómsmálaráðherra: Hvers vegna birtir SA ekki niðurstöðu könnunar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott fordæmi en engna vegin næjanlegt í þessu árferði.

þegar laun stjórnenda  lífeyrissjóða eru skoðuð þá kemur í ljós að forstjórar og eða framkvæmdastjórar sjóðanna eru með 2- 3 miljónir kr í mánaðarlaun + launatengd gjöld sem eru ca 42% til viðbótar þessum launum og er þá kostnaðurinn  kominn í ca  3 - 4 miljónir á mánuði . Hvað þarf marga sjóðsfélaga til að greiða þennan kostnað - það væri nú sjálfsögð kurteisi þessara manna að upplýsa okkur lífeyrissjóðsgreiðendur um. Þessir menn hafa líka komið fjármagni svo fyrir að lífeyrissjóðir hafa tapað um 15% af heildarinneignum sínum - eru þetta ábyrgar gerðir og eigum við að greiða þessum mönnum laun fyrir að eyðileggja lífeyrissjóðina.


mbl.is Laun stjórnenda LV lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður að fara rukka þessa útlegning !

það verður að fara að rukka þessa útlendinga sem eru að fara í glórulausar ferðir um hálendi Íslands. Nú síðast er verið að bjarga tveimur mönnum úr Básum.
mbl.is Menn fundust í Básum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankastjóri nýja Glitnis sleppur en. Bara gleymir 180 miljónum kr.

Það er alveg með ólíkindum að ,,bankastjóri,, geti gleymt að greiða 180 miljónir! Og takið eftir því að það er enginn í þessu þjóðfélagi sem gagnrýnir þessi lok á hennar viðskiptum við gamla Glitni, hvers vegna er fólk svona dofið. Hvað er að gerast í bankageiranum og hjá stjórnvöldum, hvernig er hægt að treysta persónu eins og bankastjóra nýja Glitnis þegar hún ,, geymir,, að greiða - mér finnst þetta algjörlega óásættanlegt. Ég er vissum að viðskiptavinir nýja Glitnis geta ekki og komast ekki upp með það að ,,geyma,, að standa við skuldbindingar sínar. Birna það er þinn sómi að segja starfi þínu laun strax,!!!!!!!! 

180 miljónir eru laun  1364 atvinnulausra einstaklinga í einn mánuð, ekki neinir smápeningar.


Viðskipta sukkið er það rétt að byrja aftur.

Er viðskipta sukkið að byrja aftur - erum við íslendingar ekki búnir að fá nóg! Við getum ekki sætt okkur við að það sé hægt að henda út miljóna tugum og láta eins og ekkert sé. NEI TAKK. Bankarnir eru á bólakafi í að rétta gömlu viðskiptasvindlurum eigir sínar á silfurfati aftur. Það virðist ekkert viðskipta siðferði vera lengur til í þessu landi. 
mbl.is Next vildi þau eða ekkert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá þeim brærum að reyna koma fótum undir Existu!

Er þetta sjónarspil þeim bræðrum, eða eru þeir í reynd að koma Existu á fæturna, við sem fylgst höfum með bankakrísunni á Íslandi er nokkur efi í huga þegar komið er með tugi miljarða í formi björgunarhringa, en vonandi er þetta skref í að bjarga íslensku fyrirtæki frá gjaldþroti.

Ríkistjórnin ætti að taka þessa bræður sér til fyrirmyndar en það er með því að setja mikið fjármang út til fyrirtækja í landinu, ef fyrirtækin stöðvast þá er voðin vís.


mbl.is Bakkabræður taka yfir Exista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og Steingrímur heldur að hann sé orðin forsætisráðherra!!

Mikið skelfing er að fylgjast með þessu flokk fólks sem aðhyllist stefnu VG, skoðana kannanir hafa verið sýna fylgisaukning hjá VG undanfarna daga, er innistæða fyrir þessari fylgisaukningu ,,NEI,, þessi flokkur Þ.E vg  elur á ótta fólksins og Steingrímur á að skammast sín og hætta í pólitík, maður sem ekki getur hamið skap sitt á ekki að vera í pólitík, Steingrímur er best geymdur á norður austur horni landsins þar sem hann getur lagt stund á göngutúra einn þar sem hann er ekki sífellt að auka á ótta fólksins. BURT ÚR PÓLITÍK STEINGRÍMUR.Blush
mbl.is Vilja þak á verðtryggð lán og frystingu uppboða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveitir landsins.

Bjögunarsveitir hafa sýnt það síðustu dag hvað við eru rík þ.e  íslenska þjóðin að hafa svona stóran og óeingjarna hóp manna og kvenna sem eru tilbúinn að fara hvenær sem er allan sólahringinn til að leita að fólki hvar sem það er  á landinu og eða til sjávar. Þessi stóri hópur á allt mitt hrós og bjarta framtíð.
mbl.is Maðurinn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf er Davíð jafn flottur!

Það fer engin í spor Davíðs hann er alltaf jafn flottur, lætur þennan æsingar lýð hreyfa við staðfestu sinni. Það er engin annar betri en Davíð í stól Seðlabankastjóra við þessar aðstæður. Þetta útspil hjá honum um að hann komi aftur í stjórnmálin eru alveg briljant, nú velta fjölmiðlar sér uppúr þessu næstu daga og gleyma því sem mestu skiptir máli en það eru efnahagsmál. Þegar varaformaður Samfylkingar öskrar sig hásan og heimtar að Seðlabankastjóri hverfi úr bankanum vegna þess að hann sé rúinn trausti, þá ætti þessi drengur að líta sér nær því að varformaður Samfylkingar hefur engar lausnir á efnahagsvanda þjóðarinnar enda engin furða hann hefur aldrei dýft hendi í kalt vant alla sína ævi, hefur lifað á kvótapeningum, þessi drengur ætti að skammast sín. Hann er einn af þessum alþingismönnum sem ætti að segja afsér ekki seinna en núna!
mbl.is Davíð ber fyrir sig bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Skúli Sigurðsson
Skúli Sigurðsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband